Hér er hún elsku dóttir mín, sem stóð sig eins og hetja í dag og elsku Christoffer hennar, sem var alveg frábær í dag:-) þegar kraftaverkið var að skella á. Ég er svo stolt af ykkur báðum.
Þetta er fallega ömmustelpan mín, hún er bara algjör sykurmoli:-) Það er ekki búið að ákveða nafn á hana ennþá, en hún var 3400 gr og 48 cm löng og fullkomin í alla staði þegar hún fæddist kl 15.58 að staðar tíma.
Ég efast um að það hafi fæðst fallegra barn áður;-)
Og svo sefur hún eins og engill, þessi mynd er tekin þegar hún er 2 og 1/2 klst gömul, hún var búin að fá sér aðeins að drekka og horfði mikið á mömmu sína með fallegu augunum sínum. Amman fór og sótti afa í vinnuna til að hann gæti fengið að sjá hana og hann var alveg sammála mér um að hún er falleg.Þetta sem ég upplifði í dag er bara geggjað, ég fékk að vera með alveg frá því að þau fóru upp á sjúkrahús og þangað til að sykurmolinn minn kom í heiminn:-) Ég bara get ekki hætt að brosa og vil engin leiðindakomment um það að ég sé að drepast úr væmni, maður má vera væminn þegar maður er orðin amma:-) og hana nú
Koss og knús frá ömmu, afa og tveimur stoltum frændum.








